| Sumarbústaðalandið
eru lágir hálsar með móum á
milli, sem allt ber sín heiti, eins og Græfrur,
Djúpasund, Breiðás, Selssund, og svo
mætti lengi telja.
Haugaselið. Í sumarbústaðalandinu
sjálfu er rúst ein, sem nefnist Haugasel
og má ekki hrófla við henni. Ekki er
vitað um aldur hennar en fráfærum var
hætt hér í byrjun 20. aldar, að
talið er. Þar eru líka Þórðar-stapar
en engin veit hver þessi Þórður
var. Kannski hann hafi aðstoðað Leysingjann
við laxveiðarnar?
Lóðirnar eru mismunandi að stærð
og gerð og fer verðið eftir því
að hluta. Greitt er stofngjald við undirritun
leigusamnings og árgjald eftir það. Fyrsta
árið er leigulaust. Flestar lóðirnar
eru til leigu, örfáar til sölu. Mikið
hefur verið spurt og skoðað þannig að
ekki missir sá sem fyrstur fær. Þetta
svæði er nýlega skipulagt og er ás
sem skilur landið frá þjóðveginum,
því truflar umferðin ekki íbúa
byggðarinnar.
Þar sem birkið
og fjalldrapinn grær...
Landið er töluvert vaxið kjarri, mest ber
á birki og fjalldrapa. Gljúfurá liðast
niður á vestur enda landsins. Svæðið
er sérlega sólríkt með gott útsýni
til allra átta. Sjá má alla helstu
jökla héraðsins, Eiríks- og Langjökul,
Okið, Skjaldbreið, Skarðsheiði svo ekki
sé minnst á drottningu Borgarfjarðar,
Bauluna, sem vakir yfir landinu. Rafmagn er komið
á svæðið. |