|
Álfar og tröll. Ýmsar aðrar sögur eru til um örnefni
hér. M.a. hafa fundist sagnir um huldufólksbyggð,
hafðar eftir fólki er lifði fram yfir miðja
síðustu öld. Talið er að huldufólk
búi í borginni næst bænum og
er Borgabrekkan álagablettur sem ekki má
slá. Eins er sagt að huldufólk búi
í Stekknum sem stendur fyrir ofan Sigmundarnesið.
Þjóðsögur eru einnig tengdar landinu.
Þannig er að fyrir innan bæinn er klettur
er heitir Þursahaus því hann er eins
og stór haus að lögun og annar við
sem heitir Söðull. Sagan segir að skessan
í Skarðsheiðinni og tröllkarl að
norðan hafi verið heitbundin og hafi ætlað
að hittast við Norðurá. Karlinn fer
að heiman með söðul á bakinu er
hann hugðist færa ástkonu sinni. Sem
hann kemur arkandi milli borganna þá sér
hann unnustu sína stitja við ána. En
við hlið hennar situr annar karl. Verður hann
svo hamslaus af bræði, rauður af reiði,
að hann bræðir undan sér jörðina
og sekkur niður. En áður en hann hvarf
allur kom sólin upp og varð hausinn að
steini svo og pakkinn er hann bar á bakinu. Skessan
og ástmaðurinn flúðu af hólmi
en þar sem þau sátu við Norðurá
heita Hvammar og eru þeir rassför þeirra.
Kötturinn á Haugum.
Á Haugum í Stafholtstungum bar svo við,
að köttur eignaðist kettlinga í útihúsi.
Gömul kona, er þar var, gekk í húsið
og færði kettingum mjólk og fisk. En
er kisa fór að éta, hugaði konan
að kettlingunum. Brá henni heldur í
brún, er hún sá, að einn þeirra
var með þrjú augu. Þriðja augað
var við nefrótina og stóð á
stilk.
Þessi kettlingur var og enn sjáandi. Störðu
öll þrjú augun grimmdarlega á
hana. Gamla konan varð flemtri slegin og hljóp
til bæjar. þegar þetta gerðist,
var Sigurður Jónsson bóndi á
Haugum og Sigurður Þórðarson sýslumaður
í Arnarholti. Skrifari hans var Sigurður skáld
Sigurðsson. Bóndinn á Haugum brá
nú skjótt við og fann Sigurð skáld
að máli. Bað hann skáldið að
koma hið snarasta með sér og ráða
ófögnuð þennan af dögum. Nafni
hans hét þar góðu um og fór
með honum. En er þeir opnuðu útihúsið,
stökk læðan út með vanskapaða
kettlinginn í kjaftinum. Eltu þeir hana og
náðu eftir langan og harðan eltingarleik.
Kötturinn beit og klóraði og hvæsti
ógurlega. Er þeir náðu kettlingnum,
hljóp kisa burt og sást aldrei framar. Þeir
félagar létu kettlinginn í poka.
Sigurður skáld tók bát og reri
út á Haugahyl nálægt því,
sem Norðurárbrú er nú. Hann batt
stóran stein við pokann og sökkti í
hylinn. Nokkru síðar komst sá kvittur
á kreik, að eftir sjö ár mundi
kettlingur þessi vera orðinn að ógurlegu
skrímsli, ganga á land og eyða byggðinni.
Er sagt, að nokkrir menn hafi borið ugg í
brjósti vegna þess. En sem betur fer rættist
það ekki. Þótti og öðrum
svo sem sjálfsagt, að skáldið frá
Arnarholti hefði gengið rækilega frá
óskapnaði þessum. (Norðurá-fegurst
áa. Björn J. Blöndal) |