|
Stutt er í alla þjónustu. Baulu-skálinn er við hliðið með
verslun, bensín, grill og vínveitingaleyfi.
Í Borgarnes eru 20 km.
Þar er heilsugæslan fyrir okkar svæði. Einnig Hyrnutorg-verslunarmiðstöð með ýmsar verslanir, matvöru, skóbúð,
blómabúð, ÁTVR og fleira. Bónus verslun er í
Borgarnesi. Þar er líka flott sundlaug, íþróttahús,
Safnahús svo eitthvað sé nefnt. Golfskáli er á Hamri rétt
fyrir ofan Borgarnes, þar er 18 holu golfvöllur og golfhótel, Hótel
Hamar. Í Borgarnesi opnaði sumarið 2006 Landnámssetur
þar sem Egilssögu eru gerð skil á afar skemmtilegan hátt.
Þar er einnig hægt að fá leiðsögn um slóðir Skalla-Gríms og
Egils.
Sundlaug er á
Varmalandi. Hestaleiga er í Jafnaskarði og á
Ölvaldsstöðum.
Garðyrkjustöð er á Laugalandi og Trjáplöntusala á
Laufskálum og Þorgautsstöðum.
Oft er ýmislegt um að
vera í Munaðarnesi, þar er starfrækt yfir sumartímann Kaffi
Paradís. Matsölustaðir eru einnig að Hraunsnefi,
Fossatúni og Fosshótel Reykholti, ásamt Hvíta bænum
við golfvöllinn og Hótel Hamar. Sjúkranuddstofa er starfrækt að Borgum.
(sjá sjúkranudd í stiku).
|